Er öruggt að smella á hlekkinn?

Það kemur fyrir að við fáum sendan hlekk í tölvupósti, smáskilaboðum eða á samfélagsmiðlum þar sem sendandinn vill að við smellum á hlekkinn til að skoða einhverja síðu eða efni á vefnum. Þó að skilaboðin virðast koma frá einhverjum sem við þekkjum og treystum þá er ekkert endilega víst að...

Grunnatriði netöryggis

Netöryggi byggir á nokkrum grunnstoðum eins og notkun lykilorða, sterkri auðkenningu, viðhaldi á forritum og stýrikerfum tölvu og símtækis o.fl. Hér finnur þú fyrstu en mikilvægustu skrefin í áttina að bættu netöryggi.

Tölvan og öryggi

Tölvan er þitt verkfæri til að sinna vinnu og skóla, spila leiki, eiga í samskiptum við vini og fjölskyldu, flakka um netið o.fl. Það er því mikilvægt að tryggja vel að stýrikerfið og forrit tölvunnar séu uppfærð reglulega og öryggisvarnir og stillingar sé ákjósanlegar.

Síminn og öryggi

Síminn er mest notaða tækið til að flakka um netið, vera á Tiktok, Instagram, Facebook og öðrum samfélagsmiðlum, lesa greinar og fréttir o.fl. Það er því mikilvægt að huga vel að því hvernig öryggið á símanum er tryggt.

Netið

Netið er orðinn nokkuð stór hluti af okkar daglega lífi og því mikilvægt að við hugum vel að því hvernig við getum aukið öryggið okkar þar. Það vilja fæstir lenda í því að láta eyða gögnunum sínum, fá óviðkomandi inn á heimabankann eða í myndirnar sínar.

Samfélagsmiðlarnir

Samfélags-miðlarnir

Ekki láta óviðkomandi stela aðgangi þínum að Instagram reikningnum þínum eða öðrum samfélagsmiðlum. Það tekur bara örfáar mínútur að vernda gögnin þín, samskipti og aðganga að samfélagsmiðlunum.

Nýjustu greinarnar

Nýjustu greinarnar um stafrænt öryggi og hvernig þú getur ferðast öruggt um netið. Það þarf ekki mikla þekkingu eða tíma tll að tryggja öryggið betur.